Raunvísindastofnun Háskólans
Háloftadeild
Háloftadeild rekur segulmælingastöð
í Leirvogi í Mosfellssveit. Stöðinni var komið
á fót árið 1957 og er hún hin eina sinnar
tegundar hér á landi. Þar eru skráðar breytingar
á segulsviði jarðar, bæði skammtímabreytingar
af völdum rafagnastrauma frá sólu og hægfara breytingar
sem stafa af hræringum í kjarna jarðar. Breytingarnar
hafa meðal annars áhrif á stefnu áttavitanála,
og langtímamælingar í Leirvogi eru því
notaðar til að leiðrétta kort fyrir siglingar og flug. Niðurstöður mælinga sem skráðar eru á
10 sekúndna fresti eru sendar daglega til gagnamiðstöðvar
í Kyoto í Japan og mánaðarlega til Boulder í
Colorado.
Háloftadeildin sér einnig um rekstur tveggja stöðva
til norðurljósarannsókna, en stöðvarnar eru
í eigu Pólrannsóknastofnunar Japans. Önnur þeirra
er á Augastöðum í Borgarfirði, en hin á Mánárbakka á
Tjörnesi. Stöðvum þessum var komið upp 1983, en
tækjabúnaður þeirra er í stöðugri
þróun. Hið sama er að segja um segulmælingastöðina
í Leirvogi.
Þá sér Háloftadeildin um rekstur tveggja ratsjárstöðva til rannsókna á
rafhvolfi jarðar. Önnur þeirra er við Stokkseyri en hin við Þykkvabæ.
Fyrrnefnda stöðin var sett upp árið 1993 og er í eigu franskra rannsóknastofnana en sú síðarnefnda,
sem tók til starfa 1995, er í
eigu háskólans í Leicester í Englandi. Þessar stöðvar eru mikilvægur hlekkur í
keðju slíkra stöðva sem nær bæði til norður- og suðurhvels jarðar. Markmiðið með
keðjunni er að kortleggja áhrif sólar á rafhvolfið.
Segulmælingastöðin í
Leirvogi
Leirvogur Magnetic Observatory
Almanak Háskólans er reiknað
og búið til prentunar við Háloftadeild.
|